Höfuðbúnaður - námskeið - FULLBÓKAÐ

Höfuðbúnaður

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 13 klst.

Tími: 27. og 28. nóvember - laugardag kl. 10 - 17 og sunnudag kl. 9 - 15.

Námskeiðsgjald: 46.150 kr. (41.535 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Viðfangsefni námskeiðsins er höfuðbúnaður við faldbúning, skautbúning eða kyrtil. Nemendur gera krókfald, spaðafald eða skautfald. Allt sem þarf til höfuðbúnaðarins er útvegað af kennara. Gera má ráð fyrir 15.000 - 20.000 kr. í efnisgjald.