Harðangur og klaustur - FULLBÓKAÐ

Harðangur og klaustur

Kennari: Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 7 klst.

Tími: 9. og 13. nóvember, þriðjudagur kl. 17 - 20 og laugardagur kl 10 - 14. 

Námskeiðsgjald: 22.500 kr. (20.340 kr. fyrir félagsmenn) – nál, efni og garn í prufur er innifalið.

Námskeið í grunnatriðum harðangurssaums sem hentar vel byrjendum. Einkenni aðferðarinnar er flatsaumur, stólpar sem kastað er yfir og fyllingar í útklippt göt. Flatsaumur myndar nokkurs konar blokkir/þyrpingar sem raðast saman. Nemendur hafi með sér skæri, fingurbjörg og saumhring ef vill. Í seinni tímanum gefst nemendum tækifæri á að byrja á stærra verkefni s.s. dúkum og milliverkum.