Refilsaumur - FULLBÓKAÐ

Refilsaumur

Kennari: Dóra Guðrún Ólafsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tími: 10. og 17. nóvember  - þriðjudagar kl. 18 - 21.

Námskeiðsgjald: 17.800 kr. (16.020 kr. fyrir félagsmenn) - nál, efni og garn er innifalið.

Refilsaumur er forn útsaumsaðferð en reflar skreyttu hús og kirkjur á miðöldum. Útlínur eru saumaðar fyrst og síðan er fyllt inn í fletina. Að lokum eru saumaðar aukaútlínur, andlit eða önnur atriði sem þurfa áherslu. Refilsaumur er einstaklega fallegur til að sauma út myndir og fyllta fleti. Nemendur læra aðferðina og sauma litla mynd.