Þjóðbúningur herra og drengja - námskeið

Þjóðbúningur herra og drengja

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir

Lengd námskeiðs: 6 skipti = 21 klst.

Tími: Máltaka 3. apríl - miðvikudagur kl. 16.00-19.00

Saumatímar:  27. og 30. apríl 11. 18., 21. og 28. maí laugardaga kl 10-14 og þriðjudaga kl 18-21

Námskeiðsgjald: 112.700kr. (101.430kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið

Saumaður er þjóðbúningur herra eða drengja - buxur, skyrta og vesti.  Sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka fer fram í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ. Einnig verður i boða á þessu námskeiði að sauma brjóstadúk og treyju, einhneppta eða tvíhneppta í samráði við kennara.