Þjóðbúningur kvenna - dagnámskeið - FULLBÓKAÐ

ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA — DAGNÁMSKEIÐ

Kennari: Jófríður Benediktsdóttir.

Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.

Tími: Máltaka 25. september

Saumatímar: 7., 12., 16., 21., 26. og 30. október, 4., 9., 13. og 18. nóvember,  kennt mánudaga og föstudaga aðra vikuna en miðvikudaga hina vikuna. Kl. 10-13

Námskeiðsgjald: 139.000 kr. (125.100 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ