Tvíbandavettlingar / fingravettlingar

Tvíbandavettlingar / fingravettlingar

Kennari: Guðný Ingibjörg Einarsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tími: 11. og 18. maí - miðvikudagar kl. 18 – 21.

Námskeiðsgjald: 17.900 kr. (15.120 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Skemmtilegt og krefjandi námskeið í tvíbandaprjóni. Kjörið fyrir þá sem kunna að prjóna en vilja ná góðum tökum á þessari aðferð. Prjónaðir eru hefðbundnir tvíbandavettlingar eða hanskar á prjóna nr. 2 og nr. 2,5 eftir uppskrift frá kennara. Nemendur koma með garn, sokkaprjóna og nál.