Umsjónartímar í þjóðbúningasaumi
Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð.
Tími: 5. mars - laugardag kl. 10 - 13.
Námskeiðsgjald: 8.940 kr. skiptið (8.046 kr. fyrir félagsmenn).
Umsjónartímar eru ætlaðir þeim sem vinna að faldbúningi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklingsmiðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúningasaumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum.
Skráning fer fram á [email protected]