Undirpils fyrir þjóðbúning - FULLBÓKAÐ

Undirpils fyrir þjóðbúninga

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst. 

Tími: 29. maí og 4 júní - miðvikudagar kl 18.00-21.30

Námskeiðsgjald: 30.000 (27.000 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Undir þjóðbúninga er gott að bera undirpils, bæði þægindanna og útlitsins vegna. Á námskeiðinu er saumað undirpils fyrir 19. eða 20. aldar þjóðbúning. Pilsið er klæðskerasniðið, nemendur mæta fyrir fyrsta kennslutíma í máltöku og efnisval. Allt efni er fáanlegt í verslun HFÍ.

EFNI: Nokkuð úrval er af efnum og blúndum í verslun okkar í Nethylnum en einnig er velkomið að koma með eigið efni. Til viðmiðunar þarf 2m af efni í vanalegri breidd (1,4-1.5 m) og 3,7m af blúndu. Ef efnið er þunnt er viðmiðið 2,5m efni og 5,2m af blúndu.

Hámarksfjöldi nemenda er átta.