Til baka
María himnadrottning - refilsaumspakkning
María himnadrottning - refilsaumspakkning

María himnadrottning - refilsaumspakkning

Vörunr.
Verðmeð VSK
18.900 kr.
7 Í boði

Lýsing

Forsala - pantanir verða sendar í vikunni 6.-9. nóvember 

María Himnadrottning 

útsaumspakkning /embroidery kit  

Refilsaumur - María himnadrottning - Altarisklæði frá Arnarbæli í Ölfusi. Stærð 28x28 cm

Laid-and-couched embroidery - Mary, Queen of Heaven, from an altar frontal from Arnarbæli in Ölfus, South Iceland. Size 28x28 cm

Framleiðandi Production: Heimilisiðnaðarfélag Íslands The Icelandic Handicrafts Association

Sérstakar þakkir With special thanks: Þjóðminjasafn Íslands The National Museum of Iceland

Innihald Contents:
Hvítt hörefni með áprentuðu munstri, útsaumsband og nál / White linen fabric with printed pattern, wool embroidery thread and needle.
Litir geta verið breytilegir nema annað komi fram / Colours may vary unless otherwise stated.

Sýningin Með verkum handanna verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands 4. nóvember n.k. Á sýningunni verða dýrgripir íslenskrar listasögu til sýnis: fimmtán íslensk refilsaumsklæði sem varðveitt eru á Þjóðminjasafni Íslands, Louvre safninu í París, Nationalmuseet í Kaupmannahöfn og Rijksmuseum Twente í Hollandi. Afar fátítt er að sýningar séu settar upp hér á landi með svo mörgum lánsgripum frá öðrum söfnum. Þetta er því í fyrsta og mögulega síðasta skipti sem þessi merkilegu listaverk eru saman komin á einni sýningu.

Af þessu tilefni hefur Heimilisiðnaðarfélag Íslands í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands hannað fjórar útsaumspakkningar með sýnishornum úr þremur refilsaumuðum verkum sem varðveitt eru hér á landi; kross úr altarisklæði frá Svalbarði á Svalbarðsströnd, þistill úr altarisklæði frá Arnarbæli í Ölfusi, flétta úr altarisklæði frá Draflastöðum í Fnjóskadal og María himnadrottning úr altarisklæðinu frá Arnarbæli í Ölfusi.